Rödd Elenu

Sagan sem mig langar að segja þér hér er saga minninga og bragðs. Bragðs sem kallar fram myndir úr fortíðinni. Hún segir frá stóru heimili, Giareto, og fer með okkur aftur til þess tíma þegar götur voru nefndar eftir byggingum.
Árið var 1977 þegar amma mín keypti hús í hæðunum við Reggio ásamt systkinum sínum. Þetta var gamalt, niðurnítt sveitabýli sem grunaði ekki hver örlög þess yrðu eða að því væri ætlað að verða varðveislustaður minninga sem myndu standast tímans tönn.
Hver fjölskyldumeðlimur hafði sitt horn í skemmunni til að sjá um og lagði sitt af mörkum á sinn hátt: karlarnir unnu og konurnar elduðu, hvort tveggja frá morgni til kvölds. Við börnin hjálpuðum líka til, hvert með sínu móti.
Snemma á morgnana var soðið sett á eldavélina fyrir tortellini, vinur okkar úr bændastétt kom með tómatana í tómatmaukið fyrir næsta ár og börnin þvoðu þá í garðinum og gættu þess að verða ekki stungin af býflugum eða detta í vatnið. Við vorum nú ekki sérlega varkár og enduðum oftar í vatninu en þú gætir ímyndað þér.
Mamma bjó til majónesið í algjörri þögn, eins og hjátrúin bauð, til að það skildi sig ekki. Ég hellti olíunni út í á nákvæmlega réttan hátt, í þeim hæga takti sem mér hafði verið kenndur, á meðan mamma hrærði rólega í majónesinu.
Ef ég loka augunum heyri ég enn: „Elena, komdu hingað, það þarf að rífa ost!“
Gömlu rifjárnin voru stór og það var þreytandi að nota þau, auk þess sem maður varð að passa fingurna. Parmigiano Reggiano skipti miklu máli og fór í alla rétti: soðið með tortellini, forréttina ásamt salami, deigið í erbazzone, því eins og við sögðum í Giareto: „Ef þú átt Parmigiano Reggiano áttu allt sem þú þarft.“
„Er þetta orðið nóg?“ spurði ég, en svarið var alltaf nei, því við vorum stór fjölskylda og það er aldrei til nóg af osti fyrir þrjátíu manns. Og það voru líka alltaf börn sem þurfti að gæta, því þau hættu aldrei að gráta. Verkið dróst á langinn því maður reif svolítið og borðaði svolítið. Hvernig átti ég líka að standast freistinguna?
Okkur börnunum var falið annað jafn mikilvægt verkefni: að loka tortellini. Við vöfðum pastabitunum um litlu fingurna okkar. Þetta var verkefni fyrir yngstu börnin, því því minni sem fingurnir voru, þeim mun snyrtilegra varð tortellini. Þetta var þolinmæðisverk og þolinmæði mín þraut fljótt, svo ég fór aftur að rífa al furmai. Engin furða að við notum matvinnsluvél núna.
Dag einn var Giareto loksins tilbúið. Hver fjölskylda hafði sína eigin íbúð en við deildum öll einu eldhúsi, svo við héldum áfram að elda saman og borða saman. Við ræddum uppskriftir, fylgdum reglunum en gerðum undantekningar og leituðum málamiðlana þegar samkomulag virtist ómögulegt.
Í eldhúsinu í Giareto mættust alls kyns reglur og skoðanir. Mörgum árum síðar gifti frændi minn sig meira að segja hér. Hann yfirgaf nýja heimilið sitt í Rúmeníu í nokkra daga til að rifja upp steikurnar og grænu sósurnar, tortellini, kjötáleggið og auðvitað Parmigiano Reggiano.
Það sem bragðast vel verður að góðri minningu og með þessar minningar í huga elda ég í dag fyrir fjölskyldu mína og vini. Með þessum réttum ber ég á borð minningar um skrámu á fingri, sólríkan dag og þá tilfinningu að tilheyra sem aðeins matargerð getur veitt okkur, ef við gefum okkur færi á að taka eftir henni.
Höfundar:
Texti eftir Carlotta Fiore
Ljósmynd eftir Diego Rosselli


Ofnbakað gramigna með osti
Risotto alla parmigiana með stökku guanciale og balsamikdressingu
Handgerð panettoni
Settu saman þína eigin gjöf
Tilbúnar gjafir
Rödd Fernandos
Rödd Mariu Linu
Raddir Ceciliu og Denis